Framboð af þvottavélum og sláttuvélum
Fyrri hluta maímánaðar könnuðu Neytendasamtökin framboð og verð á þvottavélum og sláttuvélum hér á landi. Margar gerðir fundust og verð er mjög mismunandi.
Björt framtíð - Landbúnaður og lífstíll

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing um framtíð landbúnaðar í breyttum heimi, farið af ráðstefnunni bjartsýnni á framtíðina en við vorum fyrir.
Markaðssetning á samskiptamiðlum
Fyrirtæki hafa gott lag á að ná til neytenda á Facebook. En hvaða reglur gilda um markaðssetningu þar?
Jóhannes sjálfkjörinn formaður
Framboðsfrestur vegna formannskjörs í Neytendasamtökunum rann út 30. apríl sl. Eitt framboð barst, frá núverandi formanni Jóhannesi Gunnarssyni sem er því sjálfkjörinn sem formaður fyrir næsta kjörtímabil.
Í þá gömlu góðu daga - NS síðan 1953
Árið 1961 skrifaði þáverandi formaður NS grein um sóun og offjárfestingu íslenskra heimila. Taldi hann fólk jafnan kaupa meira en það hefði þörf fyrir
Þakviðgerðir - neytendur sviknir
Undanfarið hefur Byggingarfélagið Reisir ehf. auglýst þakviðgerðir. Neytendasamtökin geta ekki mælt með því að fólk eigi viðskipti við fyrirtækið Reisi.
Eftirlitið upp á borðið

Neytendasamtökin krefjast þess að eftirlit verði í auknum mæli gert opinbert. Broskarlakerfið hefur verið notað í Danmörku í meira en áratug með góðum árangri.
Ráðstefna um landbúnaðarmál
Föstudaginn 13. apríl sl. var haldin ráðstefna um landbúnaðarmál en þar héldu héldu sérfræðingar á sviði landbúnaðar- neytenda- og matvælamála fyrirlestra ásamt fulltrúum hagsmunasamtaka.
Brot úr sögu Neytendasamtakanna

Hér er greint frá örfáum af þeim málum sem Neytendasamtökin hafa haft afskipti af frá því að þau voru stofnuð árið 1953.
Annríki hjá leigjendaaðstoðinni
Mörg erindi berast frá leigjendum og nóg er að gera hjá Leigjenda-aðstoðinni. Á fyrstu þremur mánuðum ársins bárust 385 erindi til samtakanna.
Minnt á ólögmæti skilmála

Lánaskilmálar Kaupþings, nú Arion banka, á gengistryggðum húnsæðislánum voru ólögmætir. Taka þarf tillit til þess við endur-útreikning íbúðarlána.
Lán í óláni

Neytendalánum fylgir áhætta og það er beinlínis tilviljunum háð hversu mikill kostnaðurinn er á endanum. Og við bara sættum okkur við þetta!
Erfðabreytt matvæli eiga að vera merkt
Samkvæmt reglum eiga erfðabreytt matvæli að vera merkt sem slík. Það er Matvælastofnun og heil-brigðiseftirlit sveitarfélaga sem á fylgjast með að svo sé.
Nýtt Neytendablað
Fyrsta tölublað Neytendablaðsins er komið út. Að venju er fjallað um margs konar neytendamál. Allt um rúmdýnur, stafræna útsendingu sjónvarps, framleiðslu á leðurskóm o.fl.
Alþjóðlegur dagur neytendaréttar
Jafnvel þegar neytendur hafa fengið nóg af bankanum sínum eiga þeir erfitt með að flytja viðskipti sín eða þeir sjá sér ekki hag í því. Þetta leiðir til þess að enginn hvati er fyrir banka að bæta þjónustu eða lækka verð.
Óheimilt að vigta umbúðir með
Það er óheimilt að vigta umbúðir með við sölu á matvælum. Þetta á við um allar matvörur, einnig þær sem vigtaðar eru í fisk- og kjötborðum.
Er dýnan orðin þreytt?
Neytendasamtökin könnuðu framboð á rúmdýnum og skoðuðu verð og úrval í 15 verslunum. Alls voru 110 mismunandi gerðir rúmdýna til sölu í þessum verslunum og verðmunur er mikill.
Aðgerðir til að efla og auðvelda póstverslun
Tillaga um skipun starfshóps um aðgerðir til að efla og auðvelda póstverslun hefur verið lögð fram á Alþingi. Laga- og regluverk kringum póstverslun hefur hindrað eðlilega framþróun hér á landi.
Varúð! Vanrækslugjald
Er vanrækslugjald refsing slugs-anna eða skattur á hina tekjuminni? Sérstakt vanrækslu-gjald, sé bifreið ekki færð til skoðunar á tilsettum tíma, var tekið upp fyrir þremur árum. Samt eru enn margir sem trassa að láta skoða bíla sína.
Um lánamál heimilanna

Heimili sem vilja breyta lánum úr verðtryggðum í óverðtryggð, eiga að fá að gera það með lágum tilkostnaði. Sjá ályktun stjórnar Neytendasamtakanna.
Skráargatið í höfn
Hollustumerkið Skráargatið verður innleitt á Íslandi en Alþingi samþykkti í dag þingsályktunar-tillögu þess efnis. Fyrsti flutnings-maður var Siv Friðleifsdóttir.
Seinkun á flugi vegna veðurs
Snjóþungt hefur verið síðastliðna daga og seinkanir í innanlands-og millilandaflugi. Í slíkum tilfellum eiga farþegar ákveðinn rétt til þjónustu.
Eftirlit gert opinbert
Neytendasamtökin ítreka kröfu sína um að eftirlitsskýrslur heil-brigðisfulltrúa verði gerðar opin-berar. Danir hafa nú í áratug notað svokallað broskarlakerfi og árangurinn er góður.
Er matvælaframleiðsla traustsins verð?
Neytendasamtökin gera alvarlega athugasemd við að matvæla-fyrirtæki noti iðnaðarsalt í fram-leiðslu sína. Þá eiga eftirlitsaðilar að tryggja að framleiðslan sé í fullu samræmi við gildandi reglur.
Hagsmunasamtök en ekki opinber stofnun

Þótt Neytendasamtökin eigi allt sitt undir félagsmönnum vinna þau að öflugri hagsmunagæslu fyrir alla neytendur í landinu. Grein í Frétta-blaðinu 13. janúar 2012 eftir Þuríði Hjartardóttir.
Ársskýrslur 2011
Út er komin ársskýrsla Leið-beininga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna fyrir árið 2011. Einnig er komin út árs-skýrsla Evrópsku neytendaaðstoð-arinnar ECC-Ísland.
Ársskýrsla Leigjendaaðstoðarinnar

Ársskýrsla Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna 2011 er komin út. Á árinu bárust leigjenda-aðstoðinni alls 1048 erindi frá leigjendum.
Útsala - reglur um skilarétt og inneignanótur
Engin lög gilda um skilarétt þegar neytandi vill skila ógallaðri vöru en til eru verklagsreglur sem taka á skilarétti, inneignarnótum og gjafabréfum. Hér má sjá um hvað verklagsreglunar snúast.
