Saga Neytendasamtakanna - Lokaorđ

Ragnhildur Guđjónsdóttir
Lokaorđ

Ţegar íslensku Neytendasamtökin voru stofnuđ 1953 voru ţau ţriđju neytendasamtökin sem stofnuđ höfđu veriđ í heiminum. Ólíkt neytendasamtökum á Norđurlöndunum og í ýmsum öđrum löndum, hafa íslensku samtökin starfađ nánast alfariđ á eigin forsendum sem frjáls félagasamtök og fengiđ lítinn sem engan stuđning frá ríki og sveitarfélögum. Ţađ er ţví alls ekki sjálfgefiđ ađ slík samtök nái fimmtíu ára aldri og vaxi og dafni á ţví tímabili. Saga Neytendasamtakanna er ţví saga erfiđleika og barráttu og mikils starfs fjölda fórnfúsra einstaklinga. Ţrátt fyrir frumleika, dugnađ og ósérplćgni frumherjans hafđi allsráđandi stjórn hans á samtökunum stađiđ framţróun ţeirra fyrir dyrum um alllangt skeiđ ţegar gerđ varđ hallarbylting í samtökunum 1968. En róttćkar breytingar á stjórninni höfđu einnig í för međ sér áhćttu fyrir samtökin. Ţau biđu álitshnekki, misstu fjölda félagsmanna og ţó nokkrir stjórnarmenn misstu fljótlega áhuga á starfi og málefnum samtakanna. Ţá voru gerđar ráđstafanir til ađ tryggja fjölpólitíska stjórn og fjórum árum eftir hallarbyltinguna höfđu samtökin sannađ sig sem ţverpólitísk samtök neytenda. Forysta samtakanna hafđi lćrt ađ umbera, meta og nýta sér ólíkar stjórnmálaskođanir ţeirra sem komu ađ stjórnun og stefnumótun. Nćsta eldraun samtakanna snérist um fjármála- og starfsmannastjórnun. Í ţeim efnum seig á ógćfuhliđina á fyrri helmingi áttunda áratugarins. Međ ađhaldssemi, nýtni og útsjónarsemi tókst forystumönnum samtakanna ađ rétta viđ fjárhaginn og auka smám saman viđ starfsemi samtakanna eftir ţví sem fjárhagur ţeirra leyfđi. Samtökin höfđu lćrt ábyrga starfsmanna- og fjármálastjórn sem ţau búa enn ađ. Eftir ţessa sigra hefur vegur Neytendasamtakanna aukist jafnt og ţétt og starfsemi ţeirra orđiđ ć mikilvćgari í samfélagi sem leggur sífellt meiri áherslu á mikiđ vöruúrval, gćđi, hagstćtt verđ og heiđarlega viđskiptahćtti. Í dag eru Neytendasamtökin ţví hvoru tveggja í senn, raunveruleg fjöldasamtök íslenskra neytenda og veigamikil hagsmunastofnun í íslensku samfélagi.

 

Reykjavík,  desember 2003

 

Ragnhildur Guđjónsdóttir